Eignamiðlun kynnir:
Bárðarás 13, 199.9 fm 5 herbergja steypt einbýlishús á góðum stað á Hellissandi. Frábært fjölskylduhús sem hefur verið töluvert endurnýjað á síðustu árum. Eignin
er skráð sem hér segir hjá HMS: Fastanr. 211-4191. Ibúðin er skráð 144,4 fm og bílskúr 55,5 fm, birt heildarstærð 199.9 fm.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.Nánari lýsing eignarinnar:Eignin skiptist í:Forstofu/hol, 4 svefnherbergi, stofu, eldhús, snyrtingu, þvottahús og 1 baðherb. Stór bílskúr.
Forstofa er með flísum á gólfi og með góðum fataskáp.
Hol/gangur er parketlagður með útgengi á góðan sólpall til suðurs. Fyrir framan svalahurð er flísalagt.
Stofa er með parketi og er björt með stórum gluggum.
Svefnherbergin eru fjögur og ero öll með parket á gólfum og fataskápar í öllum nema einu.
Eldhús er með nýlegri innréttingu ásam nýlegum tækjum. Tveir ofnar og uppþvottavél, viðarborðplata og parket á gólfi.
Þvottahús er innaf eldhúsi og er rúmgott með flísum á gólfi.
Snyrting er inní forstofu með klósetti og vaskainnréttingu.
Baðherbergi er með parketflísar á gólfi og flísum á veggjum. Innrétting, upphengt klósett, baðkar og sturta.
Bílskúr er máluðu gólfi og er mjög rúmgóður. Nýleg hurð með rafmagnsopnara einnig er inngangshurð frá sólpalli.
Skv. eiganda hafa eftirfarandi endurbætur átt sér stað á undanförnum árum
2018 - nýtt eldhús, nýjar innihurðir, nýtt parket, ný klósett, sett varmadæla, nýir gluggar á suðurhlið. Skipt um gler í gluggum að norðanverðu.
2022 - skólpið endurnýjað, efni í þakkant keypt og fylgir með.
Afar fallegt hús sem stendur í rólegri götu í bænum. Frábært útsýni er til Snæfellsjökuls.
Nánari lýsing eignarinnar:Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6603452, tölvupóstur
[email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook