Hafnargata 13, 340 Stykkishólmur

64.900.000 kr.
  • Tegund Einbýli
  • Stærð 109 m2
  • Herbergi 4
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1906
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 56.850.000
  • Fasteignamat 40.550.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:


Hafnargata 13, 340 Stykkishólmi. Sérlega fallegt einbýlishús á einstökum útsýnisstað á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi. Húsið hefur verið endurnýjað að nánast öllu leyti á afar vandaðan hátt.   

Um er að ræða Hafnargötu 13, 340 Stykkishólmi, fastanúmer F2115864. Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 109,8 fm. Gólflötur er nokkuð stærri þar sem efri hæðin er undir súð. Á aðalhæð sem er 71,6 fm er anddyri og gangur, eldhús, stofa, baðherbergi og svefnherbergi.  Á efri hæð eru stofa/herbergi og stórt svefnherbergi.  Í kjallara er rými fyrir þvottaaðstöðu og geymslu.

***Smelltu hér til að sækja söluyfirlit***

Nánari lýsing eignar: 
Aðalhæð
Eldhús er með innréttingu, eldavél og ísskáp. 
Stofa er björt með fallegu útsýni yfir höfnina og til sjávar.
Anddyri er rúmgott með fataskáp.  Flísar á gólfi. 
Baðherbergi er með baðkari með sturtu, klósetti, vask og spegli.  Gluggi er á baðherbergi og flísar eru á gólfi.. 
Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp og glugga.

Risið samanstendur af tveim rýmum, geta verið tvö herbergi en eru í dag nýtt sem eitt herbergi og setustofa.  Tveir þakgluggar og gluggar með góðu útsýni yfir höfnina og til sjávar.

Húsið verið endurnýjað að verulegu leyti á síðustu 20 árum. Fallegt viðargólf er á allri eigninni fyrir utan forstofu og baðherbergi. 


Nánari lýsing eignarinnar:
Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 660-3452, tölvupóstur [email protected] 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook