Eignamiðlun kynnir:
SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN
Falleg 4. herbergja íbúð í suður-hlíðum Kópavogs í sjarmerandi tvíbýlishúsi við Birkihvamm 20. Íbúðin er skráð 68.3 fm en vegna nýrrar eignaskiptayfirlýsingar sem er í ferli þar sem hluti af sameign verður skipt í séreignir á milli eiganda hússins, þá munu heildar fermetrar í séreign eitthvað breytast. Seljandi mun greiða fyrir nýja eignaskiptayfirlýsingu.
Íbúðin er staðsett í göngufæri frá Hamraborg, Smáralind, Kópavogsskóla, Smáraskóla, Menntaskólann í Kópavogi og fjölda annarra þjónustu. Kópavogsvöllur og fallegar gönguleiðir eru í umhverfinu.Eignin skiptist í forstofu, 3 svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.Gengið er inn í
forstofu með flísum á gólfi. Sérinngangur.
Á vinstri hönd er gengið inn í bjarta
stofu með gluggum á tvo vegu. Parket á gólfi.
Á hægri hönd er gengið inn í
herbergi I sem einnig gæti verið nýtt sem borðstofa. Parket á gólfi.
Eldhús með uppgerðri eldri innréttingu. Nýlega var endurnýjuð eldavél með bakaraofni, vaskur og blöndunartæki. Ísskápur fylgir með. Nýlegar flísar á gólfi. Eldhúsið er rúmgott og hægt væri að vera með eldhúsborð.
Herbergi II er með parketi á gólfi
Herbergi III er með flísum á gólfi.
Baðherbergi, flísað í hólf og gólf með handlaug, salerni og rúmgóðri sturtu.
Inn af íbúð er sameiginlegt þvottahús og kyndiklefi sem nýtist þessari íbúð mjög vel.
Sér bílastæði á lóð.Fallegur garður sem býður upp á mikla möguleika.
Ný eignaskiptayfirlýsing er komin í ferli hjá verkfræðistofu og mun seljandi greiða fyrir hana. Nánari upplýsingar veitir
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða
[email protected] ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook