Hallgerðargata 3, 105 Reykjavík (Austurbær)

79.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 90 m2
  • Herbergi 3
  • Stofur 0
  • Svefnherbergi 0
  • Baðherbergi 0
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2020
  • Lyfta
  • Brunabótamat 55.400.000
  • Fasteignamat 80.300.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Vönduð 90.6 fm, þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð í þessu glæsilega húsi við Hallgerðargötu 3, við Kirkjusand í Reykjavík. Íbúðin skiptist í anddyrisgang, , Tvö rúmgóð herbergi, baðherbergi með þvottaaðstæðu, alrými með stofu og eldhúsi ásamt svölum. Gólfhiti í íbúð. Íbúðin er stutt frá miðborg Reykjavíkur og í mikilli nálægð við Laugardalinn. Eignin er frábærlega staðsett, úti­vist­ar­gildi svæð­is­ins er mikið og gott aðgengi er að strand­lengj­unni og Laug­ar­dal. Hall­gerð­ar­gata teng­ist gömlum og rót­grónum hverfum á Teig­unum og Lækj­un­um og  þaðan er stutt í alla verslun og þjón­ustu auk nálægðar við Laug­ar­dals­laug, Grasa­garð­inn o.fl.

Fasteignamat næsta árs : 84.800.000

Komið er inní anddyri með fataskápum,
Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum. Speglafilma í gluggum í báðum svefnherbergjunum.
Baðherbergi með fallegri viðarinnréttingu. Steinn á borðum. Rúmgóð sturta og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús með fallegri viðarinnréttingu. Steinn á borðum. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
Stofan er opin við eldhúsið. Svalir með svalalokun sem snúa til suðvesturs. 
Geymsla er að stærðinni 9.2 fm og er í kjallara. Sameiginleg hjólageymsla er í húsinu.

Harðparket er á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergi en þar eru flísar. Innréttingar og tæki eru af viðurkenndum og vönduðum gerðum.  Borðplötur innréttinga eru úr kvartsteini. Gólfhitakerfi er í öllum íbúðum og njóta gólfsíðir gluggar byggingarinnar sín þannig eins og best verður á kosið.  Öll rými eru að fullu loftræst.  Alls eru bílastæði fyrir rúmlega 1000 bifreiðar í sameiginlegri bílageymslu undir svæðinu, Bílastæði í vönduðu bílastæðahúsi fylgir til afnota með hverri íbúð gegn vægu rekstrargjaldi. Þar sem auðvelt aðgengi er að rafhleðslustöðvum. 


Stuðlaborg er nýlegt hús á einstökum stað við strandlengjuna í jaðri Laugardalsins, samtengt viðskiptahverfinu í Borgartúni og sjónrænni tenginu við miðbæinn og höfnina. Sannkallað miðborgarhverfi þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu, sem og útivist við Laugardalinn og strandlengjuna.
Stuðlaborg er 77 íbúða bygging í 5 stigagöngum. Innréttingar og tæki eru af viðurkenndum og vönduðum gerðum.  Borðplötur innréttinga eru úr kvartsteini. Gólfhitakerfi er í öllum íbúðum og njóta gólfsíðir gluggar byggingarinnar sín þannig eins og best verður á kosið.  Öll rými eru að fullu loftræst.  Alls eru bílastæði fyrir rúmlega 1000 bifreiðar í sameiginlegri bílageymslu undir svæðinu, Bílastæði í vönduðu bílastæðahúsi fylgir til afnota með hverri íbúð gegn vægu rekstrargjaldi. Þar sem auðvelt aðgengi er að rafhleðslustöðvum. 

Frekari upplýsingar veitir Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s:867-0968 eða [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook