Jaðarleiti 2, 103 Reykjavík (Kringlan/Hvassal)

117.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 144 m2
  • Herbergi 5
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 2018
  • Lyfta
  • Brunabótamat 82.000.000
  • Fasteignamat 87.250.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Jaðarleiti 2,  björt, vönduð og vel skipulögð 144.2 fm 5 herbergja íbúð á 1. hæð með yfirbyggðum svölum.  Stæði í bílgeymslu í lokaðri bílgeymslu fylgir eigninni.  Gólfhiti og aukin lofthæð.

Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 236-1631, nánar tiltekið eign merkt 01-01.  Ibúðin er skráð  135,5 fm og sérgeymsla í sameign merkt 0006 er skráð 8,7fm. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu merkt B0-04,  birt heildarstærð 144.2. 

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Eignin skiptist í: forstofu, 4 svefnherbergi, stofu, eldhús, þvottahús, baðherbergi, geymslu og stæði í bílgeymslu.

Nánari Lýsing:
Forstofa með góðu skápaplássi
Stofa og borðstofa eru í einu opnu rými með glugga í tvær áttir. Útgengt út á vestursvalir með svalalokun úr stofu. Glæsileg gluggasetning með tilkomumiklu útsýni. Góð tenging við eldhús.
Eldhúsið er opið við stofu. Falleg ljós innrétting frá Nobilia með góðu skápa og vinnuplássi.
Svefnherbergi íbúðar eru fjögur. Öll rúmgóð og sérsmíðaðir skápar frá GKS sem ná til lofts í þremur þeirra
Baðherbergið er rúmgott með upphengdu klósetti, opinni sturtu með gleri, baðinnréttingu með neðri skúffueiningu með borðplötu og vask ásamt efri speglaskáp. Flísar á gólfi og hluta veggjar.
Þvottaherbergi innaf íbúð. Flísar eru á gólfi. Ljós innrétting frá Nobilia með vinnuvask, tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skápum.
Öll íbúðin er flísalögð með parketflísum. Gólfhiti er í allri íbúðinni. Aukin lofthæð er í íbúðinni.

Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, 8.7 fm.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni í lokuðum bílakjallara. 
Sameign: 2 sameiginlegar hjóla og vagnageymslur.

Virkilega falleg útsýnisíbúð í nýlegu lyftuhúsi á afar vinsælum stað miðsvæðis í Reykjavík. Fjölbreytt þjónusta og verslun í göngufæri ásamt fallegum gönguleiðum í nágrenninu. Skólar á öllum stigum í nágrenninu. Stutt í allar helstu stofnbrautir. 
 
Nánari upplýsingar veita
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í s:867-0968 eða [email protected]
Kjartan Hallgeirsson, löggiltur fasteignasali í s:824-9093 eða [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook