Erluás 38, 221 Hafnarfjörður

159.000.000 kr.
  • Tegund Einbýli
  • Stærð 252 m2
  • Herbergi 6
  • Stofur 3
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2002
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 109.200.000
  • Fasteignamat 133.450.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Erluás 38 Hafnarfirði, 252.6 fm einbýlishús á einstökum útsýnisstað með tvöföldum bílskúr og fallegum garði.
Húsið hefur fengið gott viðhald og var málað að utan 2022. 

*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*

Eignin skiptist í: Forstofu, 3-4 svefnherbergi, fataherbergi, 2 stofur, arinstofu/fjölskylduherbergi, eldhús, þvottahús og 2 baðherbergi.
Nánari lýsing:

Miðhæð: Komið er inn í flísalagt anddyri sem opnast inní parketlagða stofu og borðstofu. Inn af borðstofu er rúmgott eldhús með stein-borðplötumog vönduðum tækjum. Inn af eldhúsi er þvottahús með innréttingu og bakinngangi. Opið er út á verönd úr borðstofu. 

Neðrihæð: Þar er rúmgott parketlagt svefnherbergi með fataskáp og flísalagt baðherbergi með innréttingu og góðri sturtu, þaðan er líka innangengt í tvöfaldan bílskúr.   

Efrihæð: Komið er upp í rúmgott hol sem auðvelt er að breyta í svefnherbergi, á hægri hönd er barnaherbergi með fataskáp. Á vinstri hönd er flísalagt baðherbergi með innréttingu, hornbaðkari og sturtuklefa. Þar fyrir innan er rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi. Út af hjónaherbergi eru svalir.  Á gólfum er parket. Flísar á baði. 

Þakhæð: Rúmgott fjölskylduherbergi með parketi á gólfi og fallegum arni. Svalir. Glæsilegt útsýni er úr þessu herbergi og af svölum.

Garður: Garður er mjög fallegur með tvöfaldri hellulagðri innkeyrslu fyrir framan bílskúr og stórri timburverönd með skjólveggjum ásamt hellulagðri verönd og stígum. Í þessum garði er sól frá morgni til kvölds.

Nánari upplýsingar veitir:
Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093 eða [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook