
Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi.
Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðinum er grunnur að farsælum viðskiptum.
| Tegund | Einbýli |
| Verð | 59.000.000 |
| Brunabótamat | 46.909.214 |
| Stærð | 270 |
| Herbergi | 9 |
Eignamiðlun ehf kynnir: Vandað einbýlishús, teiknað af Skarphéðni Jóhannssyni arkitekt. Húsið er tvílyft 270,7 fm með aukaíbúð á neðri hæðinni, þar af er bílskúr 24,5 fm. Húsið er upprunalegt að mestu, vandað að fyrstu gerð og hefur ávallt verið í eigu sömu fjölskyldu. Skipt var um þakjárn kringum 1980. Innkeyrsla var hellulögð 1986 og hitalögn sett undir hana. Stofnlagnir að húsinu eru nýlegar.
Á efri hæðinni er forstofa, hol, borðstofa, stofa, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Á neðri hæðinni er forstofa, gestasnyrting, þvottahús, gangur, tvö herbergi og geymsla auk tveggja herbergja íbúðar sem skiptist í stofu, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, gang og geymslu.
Nánari lýsing: Komið er inn í flísalagða forstofu og þaðan inn í rúmgott, parketlagt hol og borðstofu. Þaðan er opið inn í bjarta, parketlagða stofu með arni. Sérvalin parana-pine klæðning prýðir loft og veggi, og sólbekkir eru lagðir fallegu mósaiki. Úr borðstofunni er gengið út á suðursvalir og af þeim má ganga niður í garðinn. Til hægri úr holi er eldhús með borðkrók og upprunalegri, lakkaðri innréttingu. Skápapláss er ríkulegt og á gólfi upprunalegar dúkflísar. Til vinstri úr holi og tveimur tröppum ofar er parketlagður gangur. Inn af honum er baðherbergi, tvö teppalögð barnaherbergi og teppalagt hjónaherbergi með skápum og dyrum út á svalirnar. Innihurðir eru úr tekki.
Úr forstofu er gengið niður á neðri hæðina. Komið er niður í flísalagða forstofu með sérinngangi og þaðan er gengið í þvottahús og gestasnyrtingu og inn á gang að tveimur herbergjum og geymslu. Úr neðri forstofunni er líka gengið niður tvö þrep og inn í tveggja herbergja íbúðina. Íbúðin var tekin í notkun um 1980 og eru innréttingar og tæki frá þeim tíma. Eldhúsið er með hvítsprautaðri innréttingu, límtrésvinnuborðum úr beyki, borðkrók og dúklögðu gólfi. Stofan er parketlögð, einn veggur og loft eru klædd furupanel. Baðherbergið er flísalagt og með baðkeri og lögn fyrir þvottavél.
Síðumúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 588-9090 - eignamidlun@eignamidlun.is
Ábyrg þjónusta í áratugi.
Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi.
Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Síðumúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 588-9090 - eignamidlun@eignamidlun.is - opið alla virka daga frá kl. 09 - 17
- Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn