
Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi.
Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðinum er grunnur að farsælum viðskiptum.
| Tegund | Einbýli |
| Verð | 146.000.000 |
| Brunabótamat | 66.895.399 |
| Stærð | 305 |
| Herbergi | 5 |
Eignamiðlun ehf kynnir: Einstaklega vandað og glæsilegt 306 fm einbýlishús á tveimur hæðum við Gnitakór í Kópavogi. Húsið er innst í botnlangagötu með fallegt útsýni til vesturs yfir borgina. Ekkert var til sparað í innréttingar og tæki. Stór steypt verönd er á neðri hæð ásamt steyptum skjólveggjum. Stórar svalir eru frá stofu efri hæðar. Mikið útsýni er frá báðum hæðum. 2,8 metra lofthæð er á neðri hæð og 3,3 metrar á efri hæð.
Húsið er á tveimur hæðum. Neðri hæð skiptist í forstofu, stofu tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og bílskúr. Efri hæð skiptist í stofu, sjónvarpsstofu, hjónaherbergi með fataherbergi, þvottaherbergi og stórt eldhús.
Komið er inn á flísalagða forstofu með stórum skápum. Stofan er stór og glæsileg með stórum gluggum og útsýni. Svefnherbergin á neðri hæð eru mjög rúmgóð með fataskápum. Baðherbergið niðri er flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa og góðri innréttingu. Gengið er gengnum þvottaherbergi með innréttingu út á steyptan skjólsælan pall til austurs. Gengið er upp fallegan bogadreginn stiga upp á efri hæð. Stofan er rúmgóð með einstaklega fallegu útsýni og gasarni. Sjónvarpsstofa er stúkuð frá stofu. Hjónaherbergið er mátulega rúmgott með fataherbergi innaf. Baðherbergið er mjög glæsilegt með fallegum flísum á veggjum og gólfi, stórum sturtuklefa og baðkari. Þvottaherbergið er með mjög góðum innréttingum og miklu skápaplássi. Eldhúsið er mjög rúmgott og einstaklega glæsilegt með granýtborðplötum við innréttingu og á eyju, einnig á eldhúsborði. Gasarinn er í eldhúsi.
Húsið er stórglæsilegt og sérstaklega vandað í alla staði og á flottum útsýnisstað. Innréttingarnar eru sérsmíðaðar frá GKS innréttingum. Það er gólfhiti í húsinu. Eins er tölvustýrt allt ljóskerfið í húsinu og gardínur rafmagnsstýrðar. Allt gólfefni mjög vandað frá Agli Árnasyni. Allir gluggar eru úr tré/áli og allar rennihurðar úr áli.
Síðumúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 588-9090 - eignamidlun@eignamidlun.is
Ábyrg þjónusta í áratugi.
Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi.
Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Síðumúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 588-9090 - eignamidlun@eignamidlun.is - opið alla virka daga frá kl. 09 - 17
- Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn