
Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi.
Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðinum er grunnur að farsælum viðskiptum.
| Tegund | Hæð |
| Verð | 45.500.000 |
| Brunabótamat | 43.023.677 |
| Stærð | 174 |
| Herbergi | 5 |
Eignamiðlun ehf kynnir: Glæsileg íbúð á tveimur hæðum með sérinngang og stæði í lokaðri bílageymslu. Úr íbúðinni er einstaklega fallegt útsýni til vesturs út á sjó og til austurs yfir Elliðavatn. Mikið er lagt í innréttingar og tæki.
Efri hæð skiptist í forstofu, stóra stofu, eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Neðri hæð sem er líka með sérinngang skiptist í forstofu, sjónvarpshol, tvö svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi. Upphituð geymsla er fyrir utan inngang neðri hæðar. Gengið er beint út frá bílskýli í inngang neðri hæðar.
Komið er inn í forstofu efri hæðar sem er flísalögð með fataskáp. Úr forstofu er komið inn á stóra parketlagða stofu með útgengi út á suð-vestur verönd. Eldhúsið er stórt og glæsilegt með miklu skápaplássi og granít borðplötu. Svefnherbergið er parketlagt með fataskáp og fallegu úrsýni. Baðherbergið er flísalagt með sturtuklefa. Gengið er niður parketlagðan stiga með lýsingu, handrið eru úr hertu gleri. Sjónvarpsholið er parketlagt. Svefnherbergin eru bæði parketlögð með fataskápum. Baðherbergið er flísalagt með baðkari. Þvottaherbergið er flísalagt með sérsmíðuðum innréttingum.
Einstaklega vönduð og góð sérhæð sem vert er að skoða.
Síðumúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 588-9090 - eignamidlun@eignamidlun.is
Ábyrg þjónusta í áratugi.
Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi.
Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Síðumúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 588-9090 - eignamidlun@eignamidlun.is - opið alla virka daga frá kl. 09 - 17
- Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn