Hverfisgata 100, 101 Reykjavík (Miðbær)

89.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 92 m2
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 2023
  • Lyfta
  • Brunabótamat 0
  • Fasteignamat 0
  • Áhvílandi 0
Opið hús: 28. apríl 2024 kl. 14:00 til 15:00.

Opið hús á Hverfisgötu 100 sunnudaginn 28.4.2024 kl. 14:00-15:00 - sýni allar óseldar íbúðir. Kári Sighvatsson s. 8998815, [email protected]

Eignamiðlun kynnir:

Glæsilegar nýjar íbúðir í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum. 

Bókið skoðun. Sýnum samdægurs. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, [email protected] 

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 201 við Hverfisgötu 100, 101 Reykjavík. 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 92,3 fm, þar af er íbúðarrými 88,0 fm og sérgeymsla er 4,3 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í alrými, tvö svefnherbergi, vinnuherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Svalir í suður. 

*** Sækja söluyfirlit ***

* Hverfisgata 100 er glæsilegt 12 íbúða fjölbýlishús á 4 hæðum. Stærðir íbúða eru frá 37,1-93,9 fm. Sérgeymsla fylgir öllum íbúðum. 
* Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur. Gott útsýni er úr mörgum íbúðum. 
Frágangur íbúða að innan: Vandaðar innréttingar frá Voke3 í eldhúsi, á baði og í herbergjum (söluaðili er Voke-III á Íslandi ehf). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki frá Electrolux, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. 
Frágangur utanhúss: Sameign, stigagangur og lyftuhús ásamt útveggjum og burðarveggjum fyrstu hæðar er úr járnbetnri steinsteypu. Ofan á steypta plötu yfir fyrstu hæð leggjast timbureiningar fyrir 2., 3. og 4. hæð. Fyrsta hæð er einangruð að innan en á hæðum 2-4 eru einangraðar timbureiningar klæddar viðhaldsléttri álklæðningu að utan. Timbur/ál gluggar með hljóðeinangrandi gleri sem snýr að Hverfisgötu. 
Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð. 
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af endanlegu brunabótamati). 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook