Tryggvabraut 24, 600 Akureyri

39.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 50 m2
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 1973
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 21.600.000
  • Fasteignamat 31.250.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

AKUREYRI - Fullbúin og fullinnréttuð orlofsíbúð í lyftuhúsi til afhendingar við kaupsamning. Vönduð húsgögn og húsbúnaður. Verönd, heitir pottar, sér upphituð skíðageymsla.
 
Íbúð 304. Glæsileg 50,4 fm íbúð á 3. hæð í endurnýjuðu húsi við Tryggvabraut á Akureyri. Íbúðin er afhent fullbúin við kaupsamning.  Öll húsgögn og húsbúnaður fylgir.

Íbúðin skiptist í anddyri með fataskáp, baðherbergi með sturtu, rúmgóða stofu með opnu eldhúsi og svefnherbergi með rennihurðum. Að auki er sameign með veröndum, heitum pottum og grillsvæði. Einnig fylgir með hverri íbúð upphituð skíðageymsla/skápur fyrir 4 skíði og skíðaskó. 

Forstofa / anddyri er með harðparketi á gólfi og fataskápum. Eldhús er með fallegri innréttingu og vel búið tækjum eins og ísskáp, bakaraofni, uppþvottavél, helluborði og háfi.
Stofan og borðstofan eru í opnu rými með parketi á gólfi. Svefnherbergið er stúkað af með veggjum en er ekki með glugga. Baðherbergið er flísalagt með sturtu með glervegg, upphengdu salerni og fallegri innréttingu.

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/
leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook