Eignamiðlun kynnir:
Glæsileg hæð auk bílskúrs í nýlega uppgerðu þríbýli við Melabraut 3 á Seltjarnarnesi. Íbúðin er á efstu hæð með aukinni lofthæð og glæsilegu útsýni til sjávar. Tvennar svalir til suðvesturs. Klæðning, einangrun, gluggar, þak, allar neysluvatns-, ofna- frárennslis- og raflagnir ásamt rafmagnstöflum voru endurnýjaðar árið 2023. Innréttingar í eldhúsi, svefnherbergjum og baðherbergi eru frá HTH. Vínylparket og innihurðir eru frá Parka.
Bókið skoðun: Lilja s. 649-3868 eða
[email protected]**Sækja söluyfirlit**Nánari lýsing:Anddyri: Gengið er inn um sérinngang í anddyri á 2. hæð hússins. Þar er forstofa með tröppum upp í íbúð. Teppi á stiga.
Eldhús: Opið við stofu. Vínylparket á gólfi, eldhúsinnrétting frá HTH, innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Stofa: Björt og rúmgóð. Vínylparket á gólfi. Útgengt út á svalir sem snúa til suðvesturs.
Hjónaherbergi: Vínylparket á gólfi og fataskápar. Útgengt út á svalir sem snúa til suðvesturs.
Svefnherbergi: Vínylparket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, innrétting og handklæðaofn.
Þvottahús: Innan íbúðar með glugga.
Bílskúr: Góður 24 fm bílskúr með góðum gluggum og rafdrifinni hurð. Bílastæði fyrir framan bílskúr.
Lóð: Snyrtileg og frágengin.
Nánari upplýsingar:Lilja Guðmundsdóttir lögg. fasteignasali, sími: 649-3868 eða
[email protected] ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook