Eignamiðlun sala fasteigna í50 ár

Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi.
Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðinum er grunnur að farsælum viðskiptum.
SKILALÝSING - STÓRAGERÐI 42-44 - REYKJAVÍK
HÚSIÐ OG INNRA SKIPULAG:
Í húsinu eru 14 íbúðir á 4 hæðum með einu stiga/lyftuhúsi og svalgangi. Efsta hæðin í húsinu er inndregin. Á fyrstu 3 hæðum eru 4 íbúðir en 2 á efstu hæð. Hverri íbúð fylgja 2 bílastæði, þar af eitt í bílakjallara. Í kjallara eru inntaksrými, geymslur, hjóla- og vagnageymsla og bílageymsla fyrir 14 bíla. Sorpgeymsla er á afmörkuðu svæði við stigahús. Lyfta er í stigahúsi. Allar íbúðir mæta kröfum fyrir hreyfi hamlaða. Með íbúðum á jarðhæð fylgir sérafnotaréttur af garði, afmörkuðum samkvæmt teikningum arkitekta.
FRÁGANGUR UTANHÚSS:
Bílastæði og innkeyrsla á norðurhluta lóðar verða malbikuð. Svæði við innganga, undir svölum, við sorpgeymslu, göngustígar og bílastæði á suðurhluta verða hellulögð. Sameiginlegri lóð verður skilað tyrfðri með trjágróðri, án leiktækja samanber teikningar landslagsarkitekta. Snjóbræðsla er á helstu gönguleiðum og á bílastæðum fyrir fatlaða. Skjólveggir verða á milli íbúða á 1. hæð. Húsið er steinsteypt, einangrað að utan og klætt með flísum en á svalagöngum og á svölum eru veggir viðarklæddir. Gluggar eru steyptir timburgluggar með álkápu, gler er tvöfalt
einangrunargler, K-gler með varmaleiðni skv. kröfu byggingarreglugerðar. Svalir eru staðsteyptar með handriðum úr áli eða stáli og öryggisgleri. Öll sameign er fullfrágengin.
FRÁGANGUR INNANHÚSS:
Innveggir á votrými verða úr rakaþolnu gifsi, en aðrir léttir veggir úr tvöföldu gifsi með einangrun á milli. Útveggir eru sandspartlaðir og múrhúðaðir eftir þörfum, en steyptir burðarveggir sandspartlaðir. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Öll loft eru sandspörtluð. Veggir og loft eru grunnuð
og máluð í ljósum lit. Sólbekkir eru hvítir með viðarkanti. Baðherbergi eru flísalögð. Íbúðir afhendast án gólfefna, nema á baði. Baðveggir eru flísalagðir upp í 2 metra. Gólfefni sem kaupendur leggja á nýjar íbúðir þurfa að uppfylla hljóðvistarákvæði byggingareglugerðar.
LÝSING:
Öll lýsing utanhúss er frágengin. í loftum íbúða eru ísteypt box fyrir innfelld halógen ljós. Kúplar eru í geymslu og þvottahúsi.
INNRÉTTINGAR:
Eikarspónn er á hurðum og innréttingum íbúða. Skúffubrautir í eldhúsinnréttingum eru með bremsustoppi. Allar innréttingar og innihurðar eru sérsmíðaðar af Sérverk ehf. Innréttingar eru smíðaðar eftir sérteikningum arkitekta. Ef kaupendur óska eftir öðrum útfærslum á innréttingum og eða öðrum spón, er boðið upp á það gegn sérgjaldi. Semja verður um breytingar áður en smíði hefst.
SVEFNHERBERGI:
Innihurðir eru sérsmíðaðar með eikarspón. Fataskápar ná allir upp í loft. Allar sýnilegar úthliðar og skápahurðir eru spónlagðar með eik. Allir skápar eru með hillum og/eða fataslám. Fataskápar eru í öllum svefnherbergjum. Fataherbergi er inn af hjónaherbergjum í öllum íbúðum. Fataskápur er einnig í forstofu. Svefnherbergi eru með síma- og sjónvarpstenglum.
ELDHÚS:
Í eldhúsi eru innréttingar af vandaðri gerð frá Sérverk ehf. spónlögðum með eik. Borðplötur eru harðplastlagðar. Eldhústæki sem eru frá Bræðrunum Ormsson ehf. eru eftir því sem við á, veggháfur (AEG 9660-D-M) eða eyjuháfur (AIRFORCE F40EXL), keramik helluborð með
snertitökkum (AEG 66030 K-MN) og fjölvirkur blástursofn með klukku (AEG B 4101-4-M). Öll tæki í eldhús eru með burstaðri stáláferð. Í borði er stálvaskur og blöndunartæki frá Tengi hf eða sambærilegt.
BAÐHERBERGI:
Innréttingar eru spónlagðar með eik og borðplötur harðplastlagðar. Baðherbergið skilast með neðri skápaeiningu og minni efriskápaeiningu þar sem pláss er, handlaug og hvítu baðkari og/eða sturtu, ásamt upphengdu salerni og handklæðaofni. Blöndunartæki eru frá Tengi. Gólf eru flísalögð og veggir eru flísalagðir í c.a. 2ja metra hæð. Viftur eru á böðum.
ÞVOTTAHÚS:
Þvottahúsin eru með innréttingum, skolvaski á vegg og flísalögðu gólfi.
SAMEIGN:
Öll sameign er fullfrágengin með máluðum gólfum á geymslu-, vagna- hjóla- og sorpgeymslu. Viðurkennt teppi er á stigum sameignar. Í anddyri eru póstkassar og pumpur á útihurðum. Myndadyrasímakerfi er í anddyri.
GEYMSLUR:
Geymslur með íbúðum afhendast með máluðum gólfum og veggjum.
BÍLAGEYMSLA:
Bílageymsla fyrir 14 bíla er í kjallara hússins og hiti í stéttum í innkeyrslu, við innganga og á stæði fyrir fatlaða. Úr bílageymslu er innangengt í geymslur íbúða og inn sameignina þar sem komið er að lyftu og stigagangi. Gólf í bílageymslu eru með steypuáferð en veggir og loft máluð.
ALMENNT:
Verði um breytingar að ræða á innréttingum og tækjum skal kaupandi gera það upp beint við viðkomandi aðila. Annað en það sem tekið er fram fylgir ekki með í kaupunum. Ganga verður skriflega frá öllum breytingum. Allar tafir sem verða vegna breytinga að ósk kaupanda hafa áhrif á afhendingartíma sem þeim töfum nemur. Kaupandi verður að staðfesta með undirskrift ósk um breytingar. Verð á íbúðum miðast við ofangreinda skilalýsingu.
Framleiðsluábyrgð á hurðum og gluggakörmum er frá framleiðanda, en þeir taka ekki ábyrgð á svignun og þéttleika útihurða sem opnast inn. Framleiðsluábyrgð á verksmiðjugleri er frá framleiðanda (Samverk eða Íspan). Hreinlætistæki og blöndunartæki eru frá Tengi hf. eð sambærilegt. Innihurðir eru spónlagðar með eik. Flísar á baði og forstofu eru ljósar á litinn. Innréttingar eru sérsmíðaðar frá Sérverk ehf. og spónlagðar með eik (aðrar viðartegundir geta verið í boði án aukakostnaðar). Innihurðar eru smíðaðar hjá Sérverk ehf.
Hafið samband við sölumenn Eignamiðlunar og bókið skoðun á þessum glæsilegu íbúðum.
Myndir af sýningaríbúðum sjá hér
Síðumúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 588-9090 - eignamidlun@eignamidlun.is - opið alla virka daga frá kl. 09 - 17
- Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn