
Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi.
Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðinum er grunnur að farsælum viðskiptum.
Sérlega vel skipulögð og falleg 242,6 fm funkis raðhús á skjólsælum stað á miðri Arnarneshæðinni. Tvílyft húsin eru glæsileg ásýndar þar sem þau eru ýmist klædd áli eða harðviði. Húsin snúa á móti suð- suðvestri þannig að þau njóta sólar allan daginn. Í hönnun hefur verið mikið lagt upp úr stórum og björtum rýmum, m.a. 50 fm stofu og eldhúsi í sameiginlegu rými á neðri hæð og glæsilegri hjónasvítu og stórum barnaherbergjum á efri hæð. Gólfhiti er á allri neðri hæðinni og í þvotta- og baðherbergjum efri hæðar. Allur frágangur að utan tryggir lágmarksviðhald. Lóð skilast fullfrágengin, hellulögð og tyrfð.
Eignamiðlun kynna nokkur óseld raðhús sem seld eru tilbúin til innréttingar.
Verð á húsunum eru:
Endahús: 39.500.000,-
Miðjuhús: 37.500.000.-
Áhvílandi eru u.þ.b. 22 milljónir frá Íbúðalánasjóði með 4,9% vöxtum og geta því væntanlegir kaupendur sparað sér þinglýsingar- og lántökukostnað af þeirri upphæð.
Sjá teikningar, verðlista og fleira inná sérhönnuðum vef um húsin
Myndir af raðhúsunum sjá hér
Síðumúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 588-9090 - eignamidlun@eignamidlun.is - opið alla virka daga frá kl. 09 - 17
- Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn