lexx

588 9090 . www.eignamidlun.is . Síðumúla 21 . 108 Reykjavík

Eignamidlun.is
Starfsmenn

sala fasteigna í50 ár

Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali



Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi.
Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðinum er grunnur að farsælum viðskiptum.

Félag fasteignasala

Hrólfsskálamelur 2-8

Glæsilegt fjölbýlishús við Hrólfsskálamel á Seltjarnarnesi
Draumastaður á Nesinu. 

Íbúðirnar eru einstaklega glæsilegar og mikið í þær lagt. Á það jafnt við um hönnun, efnisval, búnað og frágang. Staðsetningin er einstök og stutt er í allt það besta sem Seltjarnarnes hefur upp á að bjóða. Íbúðastærðir eru frá 84 fm og upp í 225 fm og ættu því allir að finna sér hentuga íbúðarstærð.
Eitt til þrjú stæði í bílageymslu fylgja hverri íbúð.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna.
Sölumenn Eignamiðlunar sýna íbúðirnar eftir óskum.
--------------------------
Hér má sjá verðlista

Nánari upplýsingar má einnig sjá á www.hrolfsskalamelur.is
--------------------------

   Hrólfsskálamelur - Fullbúnar íbúðir án gólfefna
SKILALÝSING

1.  Almenn atriði

Þessi skilalýsing gildir fyrir þær íbúðir sem skilað verður fullbúnum án gólfefna en með flísalögðum baðherbergjum og þvottahúsgólfum. Íbúðir afhendast í samræmi við teikningar og skilalýsingu þessa.

2.  Hrólfsskálamelur 2-8

Hrólfsskálamelur 2-8 er staðsettur miðsvæðis á Seltjarnarnesi.  Til suðurs afmarkast svæðið af Suðurströnd, til austurs af Nesvegi, til norðurs af Mýrarhúsaskóla og til vesturs af íþróttamiðstöðinni.  Húsið er 3ja hæða lyftuhús með 26 íbúðum í fjórum stigahúsum.
Húsið er hannað af arkitektastofunni Hornsteinum.

3.  Frágangur utanhúss

Burðarvirki húsanna er steinsteypt með hefðbundnum hætti og eru útveggir einangraðir að utan og klæddir flísum. Vandaðir ál-trégluggar eru í húsunum. Svalagólf verða frágengin með steyptu yfirborði. Svalahandrið verða úr málmi og gleri.  

4.  Bílageymslur

Bílageymslur eru neðanjarðar tengdar stiga- og lyftuhúsum. Hverri íbúð fylgja 1-3 rúmgóð stæði í bílageymslu. Bílastæði verða sérmerkt viðkomandi eignarhluta. Veggir eru slípaðir og málaðir. Bílageymslugólf er steypt og slípað án frekari meðhöndlunar. Loft í bílageymslum eru slípuð og máluð. Bílageymslur eru upphitaðar og brunavarðar með vatnsúðakerfi og sjálfvirku loftræsikerfi. Aðgangur að bílageymslu verður rafstýrður eða annar sambærilegur búnaður. 

5.  Lóðarfrágangur

Lóð verður skilað fullfrágenginni og með bráðabirgðafrágangi í samræmi við teikningu Hornsteina arkitekta dags. 30.06.2011. Á lóð verða malbikuð bílastæði fyrir íbúa og gesti. Lóð verður frágengin með gróðri, hellulögðum og/eða malbikuðum gangstígum og leiksvæði fyrir börn. Hluti gangstíga og svæða við innganga verður með snjóbræðslu. 

6.  Frágangur sameignar og geymslna

Lyfta verður í hverju stigahúsi og verða þær frágengnar við afhendingu. Anddyri verður flísalagt. Veggir í anddyri og stigagöngum verða sandspartlaðir og málaðir. Loft í anddyri og stigagöngum verða sandspörtluð og máluð eða niðurtekin loft. Stigahlaup og stigapallar verða teppalögð.
Útihurðir eru úr áli en anddyrishurðir eru úr timbri. Hurðir að íbúðum verða fullfrágengnar með tilheyrandi hurðarbúnaði. Póstkassar verða staðsettir í anddyri ásamt mynddyrasíma.
Hverri íbúð fylgir rúmgóð geymsla á jarðhæð eða í kjallara. Gólf í geymslum verða máluð og veggir verða óeinangraðir léttir veggir, málaðir. Ofnhitakerfi og hefðbundin lýsing verður í sameign og geymslum.

7.  Frágangur íbúða

Gólf

Gólf í baðherbergjum og þvottahúsum verða flísalögð en önnur gólf verða ílögð og rykbundin, án gólfefna.

Veggir

Staðsteyptir veggir verða sandspartlaðir og málaðir. Sama gildir um létta innveggi. Veggir á baðherbergjum verða flísalagðir og málaðir samkvæmt teikningum arkitekts. Veggir í þvottahúsi verða málaðir.

Loft

Loft í íbúðunum verða niðurtekin.  Niðurtekin loft verða spörtluð og máluð. Lofthæð í íbúðum verður yfirleitt um 2,7 metrar.

Innréttingar

Innréttingar eru íslensk sérsmíði frá GKS eða sambærilegt með spónlagðri eik.  Borðplötur eru plastlagðar.  Fataskápar eru íslensk sérsmíði frá GKS eða sambærilegt með spónlagðri eik.  Fataskápar eru í hjónaherbergi og tvöfaldur fataskápur í forstofu.

Möguleiki er fyrir kaupanda að semja við innréttingaraðila um breytingar á innréttingum og fataskápum komi slík ósk fram tímanlega.  Ekki er heimilt að breyta innréttingum eða fataskápum þannig að það kalli á breytingar á innveggjum eða lögnum íbúðarinnar.  Allan aukakostnað vegna breytinga á innréttingum greiðir kaupandi beint til innréttingaraðilans.  Seljandi ber ekki ábyrgð á mögulegri seinkun á afhendingu íbúðarinnar af þessum sökum.

Rafkerfi

Rofar og tenglar (fyrir rafmagn, tölvu/síma og loftnet) verða settir upp í samræmi við raflagnateikningar.  Lýsing í íbúðum verður í stofu, svefnherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergjum.  Mynddyrasími fylgir hverri íbúð og verður hann settur upp og tengdur.

Vönduð heimilistæki frá Miele eða sambærileg verða í eldhúsi; keramikhelluborð, blástursofn og eyjuháfur.  Möguleiki er fyrir kaupanda að semja við innréttingaraðila um breytingar á heimilistækjum, komi slík ósk fram tímanlega.  Allan aukakostnað vegna slíkra breytinga greiðir kaupandi beint til innréttingaraðilans.  Seljandi ber ekki ábyrgð á mögulegri seinkun á afhendingu íbúðarinnar af þessum sökum.

Hita-, þrifa- og loftræsikerfi

Gólfhitalagnir (vatnshitalagnir) ásamt stjórnbúnaði eru í íbúðunum til upphitunar.  Handklæðaofn er á baðherbergi.  Loftræsting er á böðum, eldhúsi og í stofu og verður hún frágengin. Neysluvatnskerfi verður með varmaskipti.

Hreinlætistæki

Á baði er vegghengt salerni og handlaug með einnar handar blöndunartæki.  Flísalagður sturtubotn og/eða baðkar samkvæmt teikningum arkitekts.  Á snyrtingum er vegghengt salerni og handlaug með einnar handar blöndunartæki.

Blöndunartæki í íbúðum 201 og 302 verða innfelld en utanáliggjandi í öðrum.

Í eldhúsi er niðurfelldur stáleldhúsvaskur og einnar handar blöndunartæki.  Tengimöguleikar fyrir uppþvottavél.
Í þvottaherbergi er tengimöguleiki fyrir þvottavél og þurrkara.  Gert er ráð fyrir þurrkara með rakaþétti.  Skolvaskur fylgir.

Búnaður

Lyfjaskápur og slökkvitæki fylgir hverri íbúð.

8.  Til áréttingar

Vegna framkvæmda kaupanda skal það tekið fram að ekki er leyfilegt að skerða burðarþol, hljóðvist og annað er tilheyrir sameign hússins. Vísað er til kvaðar um frágang gólfa og gólfefna í fylgiskjali með kaupsamningi.

Í nýjum íbúðum er mikill byggingaraki í steypuvirkinu. Þessi raki mun hverfa á einu til tveimur árum en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt  gluggann, gólfefni, málningu og spörtlun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna. Kaupandi gæti þurft að hreinsa sigti í blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í íbúðina og fylgjast með niðurföllum í þvottahúsi, baði og úti á svölum.

Skilalýsing þessi á ekki við um íbúð 202

Myndir af húsinu, sjá hér

Síðumúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 588-9090 - eignamidlun@eignamidlun.is - opið alla virka daga frá kl. 09 - 17

  -   Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn