sala fasteigna í50 ár

Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali



Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi.
Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðinum er grunnur að farsælum viðskiptum.

Félag fasteignasala

Hólavað 13-27

Hólavað 13 - 27 - ný raðhús í Norðlingaholti.

Ný tvílyft, samtals 146,7 fm raðhús á fallegum stað við Hólavað í Norðlingaholti. 
Húsin eru staðsteypt og eru fullbúin að utan. Inngönguhurð úr harðvið. Lóðin er grófjöfnuð. Útveggir eru steinaðir.

Skipulag
Á neðri hæðinni er forstofa, hol, gestasnyrting, eldhús og stofa auk bílskúrs.  Á efri hæðinni eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sjónvarpshol. Á annarri hæðinni eru góðar svalir til vesturs. Gert er ráð fyrir ca 30 fm geymslurisi er yfir hluta rishæðar. Ekki er full lofthæð í geymslurisinu og kemur flatarmál þess því ekki fram í heildarflatarmáli hússins.

Almennt
Húsin standa við Hólavað  í Norðlingaholti og miðast heildarskipulagáætlun svæðis við raðhús með ein halla þaki og góða tengingu við útivistarsvæði í næsta nágrenni. Byggðin lækkar til suðurs sem gerir staðsetninguna ákjósanlega.
Um er að ræða staðsteypt 2ja hæða raðhús, 146.5 m2 með innbyggðum bílskúr. Aðkoma, bílastæði og innkeyrsla í bílageymslu er á neðri hæð, norðan megin við húsalengjuna, en gengt er út í garð frá fyrstu hæð, sunnan megin.
Húsalengjan samanstendur af 8 húsum en öll húsin hafa einkaafnotareit af lóð.
Endahúsin hafa áberandi stærsta einkaafnotareit (endalóðir).

Ástand:
Hús nr. 13,15, 17, 21,23 og 25 eru tæplega tilbúin til innréttinga og öll að mestu í sambærilegu ástandi.
  Allir milliveggir eru komnir en innihurðir vantar. Milliveggir eru annars vegar úr spónaplötum og hins vegar gifsplötum. Eftir er að klæða veggi í stofu og eldhúsi í endaraðhúsinu nr. 13.  Búið er að draga rafmagn í flestar dósir en eftir er að ganga endanlega frá töflu.  Alla rofa og tengla vantar.  Eftir er að ljúka vinnu við raflagnir að hluta. Steyptur stigi er á milli hæða.  Hiti er í gólfum.  Eftir er að flota gólfin undir endanleg gólfefni.  Þak er einangrað en óklætt. Í holi efri hæðar eru 2 Velux-gluggar sem hleypa dagsbirtu niður í holið. Baðherbergin eru með innbyggðum salerniskassa en salerni vantar í öllum húsum nema húsi nr. 25. 

Hús nr. 27 er nær fullbúið. Allar skápar eru komnir og flestir uppsettir.  Eldhúsinnrétting er komin en eftir er að setja upp hluta hennar.  Baðinnrétting er komin en óuppsett. Innrétting í þvottahúsi er komin en borðplötu vantar. Í forstofu, snyrtingu, stiga, baðherbergi og þvottahúsi eru svartar náttúruflísar en eikarparket er á öðrum gólfum. Í loftum er hlynur. Handrið á stiga er úr burstuðu stáli.

Lóðin að framanverðu og að aftanverðu skilast í því ástandi sem hún er við skoðun.
Rétt er að taka það fram að húsin eru skráð á byggingarstigi 4 “fokheld bygging” og að húsin seljast í því ástandi sem þau eru í við skoðun.

Húsin eru til afhendingar strax.

Hólavað 13 - endaraðhús -  nánast tibúið til innréttinga - Verð: kr. 31.000.000,- 
Hólavað 15 - miðjuraðhús - nánast tibúið til innréttinga - Verð: kr. 29.000.000,- 
Hólavað 17 - miðjuraðhús - nánast tibúið til innréttinga - Verð: kr. 29.000.000,- 
Hólavað 19 - miðjuraðhús - nánast tibúið til innréttinga - Verð: kr. 29.000.000,- 
Hólavað 21 - miðjuraðhús - nánast tibúið til innréttinga - Verð: kr. 29.000.000,- 
Hólavað 23 - miðjuraðhús - nánast tibúið til innréttinga - Verð: kr. 29.000.000,- 
Hólavað 25 - miðjuraðhús - nánast tibúið til innréttinga - Verð: kr. 29.000.000,- 
Hólavað 27 - endaraðhús -  nánast fullbúið hús         Verð: kr. 37.000.000,- 

Hafið samband við sölumenn Eignamiðlunar og bókið skoðun á þessum fallegu íbúðum.

Myndir af nánast fullbúnu húsi sjá hér

Síðumúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 588-9090 - eignamidlun@eignamidlun.is - opið alla virka daga frá kl. 09 - 17

  -   Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn