Eignamiðlun sala fasteigna í50 ár

Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi.
Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðinum er grunnur að farsælum viðskiptum.
Höfðatorg afmarkast af Borgartúni, Skúlatúni, Skúlagötu og Höfðatúni. Þar verður blönduð byggð með íbúðum og fjölda fyrirtækja. Fjölbreytt þjónusta, opin svæði og nálægð við miðborg Reykjavíkur skapa Höfðatorgi sérstöðu. Miðborgin stækkar, en um leið verður Höfðatorg miðbæjar- og þjónustukjarni fyrir svæði sem hefur verið að byggjast hratt upp á undanförnum árum.
Höfðatorg verður í umsjá eins aðila sem mun stjórna rekstri þess. Það fyrirkomulag tryggir samræmi og gott heildaryfirbragð, svo og hátt þjónustustig. Á jarðhæð bygginga er gert ráð fyrir fjölbreyttri þjónustustarfsemi, svo sem verslunum og veitingahúsum. Skrifstofur og íbúðir verða á efri hæðum. Einnig er gert ráð fyrir að hótel rísi við Höfðatorg. Áhersla er lögð á að atvinnuhúsnæði mæti óskum kröfuharðra fyrirtækja og stofnana um vandaða umgjörð og glæsilegt umhverfi sem styður við ímynd þeirra. Það felur meðal annars í sér gott aðgengi viðskiptavina og margt fleira sem skipar atvinnuhúsnæði á Höfðatorgi í flokk þess allra besta. Við Höfðatorg fer vel um stór og smá fyrirtæki sem eiga þess kost að velja stærð og staðsetningu sem hentar þeim og innrétta rýmið með sérþarfir starfseminnar í huga. Fyrirtæki munu njóta góðs af kröftugu samfélagi fyrirtækja með skylda starfsemi og starfsfólk sækja hvíld og innblástur í gefandi umhverfi Höfðatorgs.
Um þriðjungur alls rýmis við Höfðatorg er ætlaður fyrir skrifstofurekstur. Hér eru um 30.000 m2 af fjölbreyttu skrifstofuhúsnæði sem hentar flestum gerðum og stærðum fyrirtækja sem gera miklar kröfur um sýnileika, tæknibúnað og góðan aðbúnað starfsfólks. Enn má finna allt frá 1.760m2 opnum rýmum nærri jörðu að 760 m2 útsýnishæðum með stórglæsilegri aðstöðu.
Fyrsti áfangi Höfðatorgs, sjö hæða bygging við Borgartún, hefur þegar verið tekin í notkun og er ásamt Ráðhúsi Reykjavíkur miðstöð þjónustu og stjórnsýslu borgarinnar. Í byggingunni starfa um 400 manns. Yfir 95% byggingarinnar er þegar í leigu. Í öðrum áfanga, 19 hæða skrifstofuturni sem er í byggingu um þessar mundir, eru enn rými til ráðstöfunar. Byggingin verður komin í fullan rekstur sumarið 2009.
Höfðatorg mun laða að sér fólk úr öllum áttum. Íbúar og gestir koma og fara, versla og nýta sér fjölbreytta þjónustu. Það sama gildir um starfsfólk fyrirtækjanna sem hafa aðsetur á Höfðatorgi. Úr næsta nágrenni streyma íbúar og starfsfólk þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem þar hafa tekið til starfa á undanförnum árum. Úr eldri hluta miðborgarinnar kemur fólk til að njóta nýrrar viðbótar við vaxandi borg.
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Eignamiðlunar í síma 588-9090
Einnig má sjá sérhannaðan vef um Höfðatorg
Síðumúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 588-9090 - eignamidlun@eignamidlun.is - opið alla virka daga frá kl. 09 - 17
- Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn