lexx

588 9090 . www.eignamidlun.is . Síðumúla 21 . 108 Reykjavík

Eignamidlun.is
Starfsmenn

sala fasteigna í50 ár

Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali



Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi.
Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðinum er grunnur að farsælum viðskiptum.

Félag fasteignasala

Austurstræti og Lækjargata

Metnaðarfull endurbygging í takt við söguna

Reykjavíkurborg stendur fyrir enduruppbyggingu húsanna á horni Lækjargötu og Austurstrætis, en þau skemmdust í eldsvoða vorið 2007. Á grundvelli samkeppni sem borgin stóð fyrir var ákveðið að endurbyggja húsin í anda upprunalegs útlits og eiga þau sér skýra fyrirmynd í þeim húsum sem áður stóðu á þessum stað.
Uppbyggingin gengur vel og í samræmi við áætlanir verða eignirnar boðnar til sölu eða leigu.  Hægt verður að afhenda húsin nýjum rekstraraðilum seint í haust. 

Sögulegar byggingar með nútíma notagildi

Saga og fortíð bygginga og mannvistar á reitnum á að skila sér til framtíðar, en þó þannig að húsin hafi fullt notagildi nútíma. Þetta er grunnurinn í verðlaunatillögunni um uppbyggingu  og alls fyrirkomulags á reitnum sem atkitektastofurnar Gullinsnið, Studio Granda og Argos unnu.
Þó húsin séu byggð í anda upprunalegs útlits standa þau öll á sameiginlegum kjallara þar sem tæknirými og lagerhald fyrir rekstur nýrrar starfssemi getur verið. Jafnframt er gert ráð fyrir að endurgera megi þar t.d. Rosenbergkjallarann sem var fínasti veitingastaður Reykjavíkur á sínum tíma. Gólfhæðir 1. hæða húsanna verða samræmdar og munu geta náð samræmingu við gólfhæðir í Iðu að Lækjargötu 2a.

Austurstræti 22Austurstræti 22

Reist árið 1801 og var lengi meðal merkustu húsa bæjarins. Það var byggt sem stokkahús og kom tilsniðið til landsins. Í því var íbúð stiftamtmanns, aðsetur landsyfirréttar, prestaskóli, verslunarhús og veitingahús. Húsið var friðað samkvæmt þjóðminjalögum.
Landsyfirréttarhúsið að Austurstræti 22 sem byggt var af Ísleifi Einarssyni 1801-2,  verður endurgert sem stokkahús og mun hafa allt yfirbragð frá blómaskeiði sínu eftir að Trampe greifi hafði endurbætt það verulega um 1807. Það hús mun því fá vandaða endurgerð, en við þá vinnu verður tekið tillit til nútíma þarfa og notkunar.  Þegar Jörundur hundadagakonungur ríkti hér sumarið 1806 þá bjó hann í þessu húsi. Allt byggingarefni, form og frágangur mun taka mið af upphaflegu húsi. Eldstæði hússins hefur verið flutt í heilu lagi og verður lagfært á ný við endursmíð hússins.

Lækjargata 2Lækjargata 2

Hornhúsið, Lækjargata 2, er byggt árið 1852 og er fyrsta sérhannaða hornhúsið í Reykjavík.  Sigfús Eymundsson ljósmyndari, bóksali og athafnamaður bjó í húsinu og rak þar ljósmyndastofu um árabil. Þar hafa verið ýmsar verslanir, myndlistagallerí og veitingahús verið til húsa hin síðari ár.
Húsið að Lækjargötu 2, sem byggt hefur verið í mörgum áföngum frá 1852 til 1980, verður hækkað  um eina hæð, þ.e. byggð ný fyrsta hæð og eldri hlutar endurgerðir ofan á hana. Húsið verður því þrjár hæðir og ris. Við endurgerð efri hæða verður haft í huga að lesa megi byggingarsögu hússins að nokkru leyti og verður töluverður hluti grindar eldri hluta hússins endurnýttur.
Á þaki hússins verða skífur úr íslensku blágrýti og er það í fyrsta sinn svo vitað sé að slíkt sé gert.

Nýja bíóLækjargata 2a

Nýja bíó. Húsið sem stóð á baklóðinni var byggt sem bíóhús, Nýja bíó, árið 1920 og var þá stærsta samkomuhús landsins með sæti fyrir 500 manns. Það brann árið 1998. Húsið var byggt í anda svokallaðs Jugend-stíls. 
Reist verður nýtt hús á bakhluta lóðar Austurstrætis 22 sem mun taka form sitt og yfirbragð að verulegum hluta af Nýja bíói sem reist var 1919-1920. Það hús var tvær hæðir og kjallari, en nýbyggingin mun verða þrjár hæðir. Húsið bar einkenni júgendstílsins og mun hann lifa áfram í nýrri byggingu.

Notendur innrétti húsin eftir sínum þörfum

Gert er ráð fyrir að nýir notendur og framtíðareigendur innrétti húsin miðað við sínar þarfir. Öll húsin verða fullfrágengin að utan, en óinnréttuð að innan. Þau verða fulleinangruð og stofnlagnir frárennslis, vatns, hita og rafmagns frágengnar. Undantekning frá þessu er Landsyfirréttarhúsið (Austurstræti 22), en gengið er út frá því að það verði fullklárað. 

Tímafrekir verkáfangar að baki

Frá því borgin eignaðist húsin eftir brunann vorið 2007 hefur verið unnið að ásættanlegri og áhugaverðri niðurstöðu.  Fljótlega var ákveðið að efna til samkeppni og í framhaldi af því tók við hönnunarvinna og útfærslur einstakra þátta. Nýtt deiliskipulag liggur fyrir. Lögð var mikil vinna í byggingarsögulegar rannsóknir gagnvart bæði Landsyfirréttarhúsinu að Austurstræti 22 og Lækjargötu 2. Í tengslum við þær rannsóknir voru húsin mæld nákvæmlega upp og teiknuð. Samhliða niðurtöku og uppmælingu voru húsin jafnframt ljósmynduð mjög nákvæmlega og teknar af þeim videomyndir. Þessari vinnu sem var umfangsmikil og unnin jafnvel af meiri nákvæmni en venja er til.
Þegar húsin sjálf höfðu verið fjarlægð var ráðist í fornleifarannsóknir á báðum lóðum. Á liðnu sumri að Austurstræti 22 og nú í janúar til apríl að Lækjargötu 2. Fornleifastofnun Íslands annaðist þá rannsóknarvinnu undir umsjón Minjasafns Reykjavíkur og Fornleifaverndar ríkisins.  Þegar fornleifarannsóknum lauk var hægt að gera lóðirnar klárar fyrir hina eiginlegu uppbyggingu. 
Áætlað er að uppsteypu jarðhæðar verði lokið í júlí 2010 og í framhaldi verður hægt að endurreisa 1. hæð, tréverkið hefur verið undirbúið á vegum Völundarverks í Reykjavík. Samhliða því að unnið hefur verið að uppsteypu hefur næsti áfangi verið undirbúinn og er búið að sníða saman grind efri hæðar.

Hönnun, stjórnun og verkfyrirkomulag

Verkefni þetta er sérstætt fyrir margra hluta sakir og kallar á allnokkra sérhæfni að hluta til og einnig er unnið við þröngar kringumstæður. ARGOS, Studio Granda og Gullinsnið önnuðust í  sameiningu arkitektahönnun, enda byggir verkið á verðlaunatillögu þeirra. Verkís hefur haft með höndum verkfræðihönnun. Umjón og verkefnisstjórn er í höndum starfsfólks Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar .

Aukið rými og nýr kjallari undir öllum húsunum

Byggingar sem nú rísa á horni Lækjargötu og Austurstrætis eru alls tæplega 2.500 m² að flatarmáli og rúmlega 9.000 m³ eða um tvisvar sinnum stærri en þær byggingar sem þarna stóðu fyrir brunann. Þar af er kjallari um 800 m², Lækjargata 2 ofan kjallara um 756 m², bakhús (Lækjargata 2b, Nýja bíó) ofan kjallara og með aðalstigakjarna um 724 m² og loks er húsið Austurstræti 22 ofan kjallara með útbyggingu um 220 m².
Í kjallara sem er undir öllum húsunum eru sameiginleg tæknirými og möguleiki á  lagerhaldi, starfsmannaaðstöðu og eldhúsi.  Lofthæð jarðhæðar Lækjargötu 2 og 2 b hefur verið aukin. Á númer tvö er hún þrír metrar, og á 2 b fer hún í fjóra metra. Austurstæti 22 hefur verið endurbyggt úr stokkum í upprunalegum stíl og upprunalegt eldstæði verður endurbyggt í miðju hússins.

 

Myndir af húsunum, sjá hér

Síðumúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 588-9090 - eignamidlun@eignamidlun.is - opið alla virka daga frá kl. 09 - 17

  -   Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn